fimmtudagur, nóvember 28, 2002

Vá hvað þessi tími er skemmtilegur núna, mar gerir ekkert annað en að læra eða þykjast vera að læra. Ég var að mæta upp í Odda til að fara enn og aftur yfir þessa upplýsingatækni, er að bíða eftir Emil. Spurning hvenær hann láti sjá sig, en ég leik mér bara á netinu þar til hann kemur. Ég get náttulega ekki byrjað að læra og farið á undan honum :)

Ég horfði á einn Friendsþátt í 9.seríu í gærkvöldi, mér fannst hann bara mjög góður. Freddy Prinze Junior var gestaleikari ( við Sara vorum nú dáldið skotnar í honum fyrir nokkrum árum), hann lék reyndar alveg fáránlega týpu. En þið sem eigið eftir að sjá þessa þætti, have fun.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim