Helgin var nú bara fín hjá mér, það var reyndar ekki fyrr en seinnipartinn á laugardaginn sem ég fór aðeins að hressast eftir flensuna. Fór út að borða á Galileo í Hafnarstrætinu og ég var bara mjög ánægð. Maturinn var rosa góður og fullt af réttum á matseðlinum sem ég hefði getað pantað mér. Í gærkvöldi var svo spilakvöld hérna heima hjá mér, þeir sem mættu voru ég, Þröstur, Freyja, Höskuldur, Guðný og Kiddi. Við spiluðum Party og Co og það var rosa stuð.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim