Vísindaferðin í Kaupþing heppnaðist alveg rosalega vel og ég er ekki frá því að hún hafi verið ein af þeim bestu sem ég hef farið í. Byrjað var á því að fara með okkur hring um fyrirtækið og starfsemin kynnt, eftir það var farið í matsalinn og þar var Hreiðar Már, aðstoðarforstjóri, með fyrirlestur. Svo var farið í bílakjallarann og þar var hljómsveitin Í svörtum fötum að spila og það var bara rosa ball. Allir að dansa, starfsmenn og nemendur og alveg geggjað stuð og voru veitingar og drykkir alls ekki af skornum skammti :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim