fimmtudagur, maí 01, 2003

Ég sveik mig allsvakalega í gærkvöldi, var með kveikt á sjónvarpinu og sá að mamma og pabbi voru að byrja að horfa á einhverja mynd (videoið tengt niður til mín) og haldiði að ég hafi ekki bara hætt að læra og horft á alla myndina, meira kæruleysið í mér. En þessi mynd var mjög góð fannst mér, heitir High Crimes með Ashley Judd og Morgan Freeman, mæli með henni. Held reyndar að ég hafi ekki lært neina hagfræði á henni. Úfff....í sambandi við prófið sem ég er að fara í á morgun þá er ég aðeins meira en hálfnuð að fara yfir námsefnið, næ vonandi að klára þetta seint í kvöld eða nótt, erfiðustu kaflarnir eftir argggg.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim