þriðjudagur, júlí 08, 2003

Fór í útilegu um helgina í Húsafell eða aðeins áður en komið er í Húsafell. Það var fullt af fólki sem ég þekkti þarna og skemmti ég mér mjög vel þó svo að það hafi verið ansi blautt á laugardagskvöld. Fórum í bandí á segldúk þar sem vatn og sápa voru sett á dúkinn og heppnaðist það mjög vel, voru margir vel blautir eftir þann leik.
Myndir úr útilegunni eru hér
Það er rosalega mikið að gera hjá mér í vinnunni og hef ég verið að vinna frameftir á kvöldin.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim