Enginn smá snjór í Reykjavíkinni núna, dagurinn í gær var nú alveg ótrúlegur. Ég mætti í vinnuna hálf 9 og komst alveg léttilega á þeim tíma en svo kom bara þessi þvílíki skafrenningur og snjór og um hádegið var allt gjörsamlega ófært. Greyið mamma komst ekki út úr húsi og Þröstur var á fullu að hjálpa fólki að komast út úr sinni götu í gær. Ég fékk far með einum úr vinnunni og ég hef aldrei séð annað eins, þegar við mættum að bílnum var hann bara gjörsamlega einn snjóskafl, sást nánast ekkert í hann. Sem betur fer fengum við lánaða skóflu og gátum losað bílinn að lokum en okkur var nú orðið ansi kalt og vorum orðin frekar blaut. En annars er nú bara ágæt stemning í svona veðri eða mér finnst það frekar gaman :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim