miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Þröstur minn kominn til landsins eftir að hafa verið viku lengur en ég í Köben. Það var nú ljúft að fá drenginn heim. Ég tók eftir smá breytingum hjá mér þegar ég var ein m.a. sú að ég nennti síður að fara að sofa á kvöldin og skellti frekar einni DVD í tækið og sofnaði fyrir framan kassann. Einnig hlustaði ég nokkrum sinnum á Sigurrós (bæði Ágætis byrjun og () ) þetta eru svo góðir diskar báðir tveir, mér finnst best að hlusta á þá þegar ég er að læra eða að vinna.

En án gríns þá er þessi önn hálfnuð í skólanum, ég trúi því varla mér finnst ég bara vera nýbyrjuð. Ég ætla að reyna að spýta aðeins í lófana núna svo ég lendi ekki í ruglinu í lokin.
Svo á hópurinn minn að flytja 3 case í næstu viku í endurskoðun þannig býst við að helgin fari að miklu leyti í það. Frekar stressandi þar sem kennarinn situr og spyr okkur út úr og bekkurinn líka, við verðum semsagt að hafa þetta gjörsamlega alveg á hreinu ef við viljum ekki láta setja okkur út á gat.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim