Brrr...vá hvað það er kalt úti, ég spyr mig stundum að því á svona dögum af hverju í ósköpunum ég búi hérna, en auðvitað er alltaf best hérna. Ég hitti Tryggvi aðeins á msn áðan, hann er á Spáni í Alicante og það er víst 20 stiga hiti hjá honum og allt rosa gott að frétta. Mikið djamm og allt alveg frábært. Oddný er líka í Honduras og þar er einnig sól og hiti og bara eins og í ævintýri þarna. Allt rosa ódýrt, hún er búin að fara í klettaklifur og fleira. Hún sagði að það væri talsvert mikil fátækt þarna og mikið um það að ferðamenn séu rændir þannig að ekki er sniðugt að vera með of mikið af verðmætum á sér.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim