Það er frekar mikið að gera hjá mér þessa dagana, var að vinna í allan dag og líka í gær. En það var fínt, alltaf mikið að gera í kringum mánaðarmótin.
Á laugardaginn er ég að fara að keppa á Flúðum og ég held ég sé að hugsa um að fara upp í sumarbústað sem er á Laugarvatni á morgun og keyra þaðan á Flúðir á laugardaginn. Fínt að slá tvær flugur í einu höggi, nota keppnisferðina í það að slappa af uppi í sumarbústað. Ég mundi nú taka fullt af námsbókum með og vonandi á ég eftir að geta lært eitthvað að viti :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim