mánudagur, maí 05, 2003

Frekar strembnir dagarnir hjá mér þessa vikuna, er að fara í próf á miðvikudaginn og fimmtudaginn og mér finnst ekkert smá erfitt að læra fyrir bæði prófin í einu, á örugglega eftir að rugla námsefninu saman. En ég get samt eiginlega ekki kvartað yfir þessu því á síðustu jólaprófum var Þröstur í 4 prófum á 4 dögum og ég skil ekki ennþá hvernig hann fór að því.
Ég fór á bókhlöðuna í dag en entist þar bara til 4, það er alltof mikið af fólki þar og mikið ráp og umgangur. Þegar ég er orðin vön að læra á bókasafninu í herberginu mínu með bestu aðstöðuna þá get ég bara ekki annars staðar verið.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim