þriðjudagur, september 16, 2003

Það styttist óðum í Barcelonaferðina, ég er bara farin að hlakka til en samt með smá móral út af skólanum því það er svo mikið að gera.
Ég á að skila 2 heimaverkefnum í næstu viku á meðan ég verð úti en ætla að reyna að klára a.m.k. annað þeirra áður en ég fer.
Þó ég hafi verið í Barcelona fyrir 3 mánuðum síðan þá held ég samt að þetta eigi eftir að vera mjög gaman, ég er búin að ákveða nokkra staði sem ég ætla að skoða og veit alveg í hvaða búðir ég ætla pottþétt í.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim