þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Ég er með smá áhyggjur yfir því að tölvan mín sé að deyja bráðum, hún er orðin 3.ára og frekar slöpp eitthvað. Þess vegna fór ég í Tæknibæ í dag og keypti mér svona USB minniskubb og er búin að vera að taka backup af öllum glósunum til að hafa varann á ef hún bara deyr einn góðan veðurdag. Ég kíkti aðeins á nýjar tölvur en ætla samt að vona að tölvan þrauki aðeins lengur svo ég þurfi ekki alveg að standa í þessu núna. Ef þið mælið með einhverri sérstakri vél þá er það vel þegið eða einhverju merki eða bara hvað sem er.
Ég er nebblega svo háð tölvunni minni að ef hún deyr þá held ég að ég þyrfti að kaupa mér nýja næstum því sama dag.
Ég er að klára verkefni sem ég á að skila á morgun í Reikningshaldi 4, verður ljúft að klára það en þá tekur bara næsta verkefni við sem ég þarf að skila á föstudaginn, jibbý.....alltaf svo gaman að gera verkefni (not).

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim