laugardagur, október 25, 2003

Matarboðið heppnaðist bara vel, ég bauð stelpunum upp á heimatilbúna pizzu. Ég verð samt eiginlega að viðurkenna það að Þröstur átti aðalheiðurinn að pizzunum en ég aðstoðaði hann. Það er alltaf rosa gaman hjá okkur stelpunum þegar við hittumst, yfirleitt er bakkus við höndina en í gærkvöldi var eitthvað lítið um hann. Horfðum á Idolið, þær eru allar mun meira inni í því en ég þar sem ég hef ekki séð alla þættina. En fínn þáttur engu að síður.

Það eru æfingabúðir hjá landsliðinu um helgina, búin 1 æfing af 4 og vá hvað ég er þreytt.
Það er þýskur þjálfari hérna sem sér um æfingarnar. Ég á sko ekki eftir að geta hreyft á mér líkamann í kvöld þannig planið hjá mér verður að gera EKKI NEITT nema hvíla mig. Hlakka nú bara eiginlega til að eiga eitt svona lazykvöld þar sem ég hef verið busy næstum öll kvöldin síðustu daga.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim