Búin að vera á hlöðunni að læra í allan dag og er bara nokkuð sátt við árangurinn. Verð að fara að spýta í lófana, styttist í prófin og þar sem ég er eiginlega á erfiðustu önninni minni hingað til þá er ég að verða frekar stressuð.
Er svo að fara til Hrundar í kvöld, hún var að flytja í nýja íbúð á laugardaginn og hlakka ég rosa mikið til að sjá hvernig allt er.
Sara hringdi í mig frá Köben í gær, brjálað að gera hjá henni. Kom heim frá Slóvaníu í gær og svo lá leiðin til Miami snemma í morgun. Hún náði rétt svo að henda í þvottavélina en ekki að þurrka þvottinn :) Hún kemur svo til Íslands 9.nóv og verður í rúmlega viku, ég get varla beðið eftir því og Oddný ætlar að koma til Reykjavíkur. Þannig það verður gaman þegar við vinkonurnar getum hist allar (frekar langt síðan það var)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim