Bauð vinkonunum heim í gærkvöldi í smá teiti. Rosa fínt, sátum og spjölluðum til ca 2. Ekkert varð af bæjarferð í þetta skiptið hjá neinni. Ég hafði alveg löglega afsökun fyrir bæjarferð þar sem það er próf hjá mér á miðvikudaginn OG ég þarf að skila verkefni á morgun (sem ég var eiginlega búin að gleyma). Nú er bara málið að bretta upp ermarnar og fara að gera eitthvað að viti og nýta daginn til hins ítrasta. Ég sem ætlaði líka í ræktina í dag en sé reyndar ekki alveg fram á að ná því :(

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim