laugardagur, október 04, 2003

Þessi vika hefur verið frekar busy hjá mér, það eina sem ég hef eiginlega gert er að læra, æfa og vinna. Mikið að gera hjá mér bæði í vinnunni og skólanum og er ég að reyna að púsla tímanum saman svo ég geti gert hvort tveggja.
Er búin að vera að keppa í dag og í gær í badminton og gekk svona upp og ofan, stundum vel og stundum ekki nógu vel og svo eru 2 leikir eftir í fyrramálið. Semsagt 8 badmintonleikir þessa helgina, það er nú alveg ágætlega mikið og finn ég líka aðeins fyrir þreytu núna og á hún líklega eftir að verða meiri á morgun.
Í kvöld er ég að fara í afmæli til Petrínu, það verður rosa fjör eins og alltaf þegar við vinkonurnar hittumst :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim