sunnudagur, september 28, 2003

Kom heim frá Spáni í nótt eftir fína ferð. Veðrið var reyndar ekkert alltaf til að hrópa húrra fyrir var t.d. rigning í Barcelona í gær. Fórum í Waterworld á fimmtudaginn og kom þá krakkinn í manni fram. Við skemmtum okkur öll mjög vel þar og voru nokkrar fínar rennibrautir, fórum svo í GoKart eftir það.
Eyddum laugardeginum í Barcelona þar sem rölt var um og kíkt aðeins í búðir.
Nú er það bara hversdagsleikinn sem tekur við strax á morgun og er þá eins gott að ég fari að taka mig verulega á í lærdómnum eftir þetta viku frí.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim