Annars er helgin búin að vera fín, fór út að borða í gær og í leikhús á Match með íslenska dansflokknum. Flott sýning og mæli ég alveg með henni. Eftir það var haldið á Sólon og svo á gamla Skuggabarinn þar sem Hildirhans voru að spila. Þetta var alveg þvílíkt fjör ég held að allir hafi skemmt sér vel, sungið, klappað og dansað alveg á fullu. Þetta var alveg frábært kvöld og ekkert smá fínt að rölta bara út í bíl og keyra heim. Bölvuð vitleysa að maður þurfi alltaf að drekka til að skemmta sér

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim