Það verður sko alveg meira en nóg að gera hjá mér um helgina. Vinnudjamm, verið að kveðja eina sem var að hætta eða hún hætti reyndar í sumar en það var svo mikið að gera þá að ekki var hægt að kveðja hana þá. Bekkurinn minn í skólanum ætlar líka að hittast og fara saman út að borða og svo er vísindaferð þar sem partur af saumaklúbbnum mínum verður. Þannig það er mikið hægt að gera.
Ætla að byrja á vinnudjamminum svo liggur leiðin að hitta bekkinn og svo ætla ég að reyna að hitta saumaklúbbinn seinna um kvöldið. Ótrúlegt þegar allt er að gerast sama kvöldið.
Ætla að byrja á vinnudjamminum svo liggur leiðin að hitta bekkinn og svo ætla ég að reyna að hitta saumaklúbbinn seinna um kvöldið. Ótrúlegt þegar allt er að gerast sama kvöldið.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim