Ég verð að segja að ég fór í fyrsta skipti í strætó í MJÖG langan tíma á föstudaignn. Bíllinn minn var á verkstæði þannig ég varð að taka strætó í skólann. Tók Sjöuna úr Fossvoginum og upp í Háskóla, það gekk bara alveg glimrandi vel og var bara rosa fínt. Var með geislaspilara með mér og hlustaði á Sigurrós alla leiðina. Ég komst semsagt í skólann á réttum tíma.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim