Hin fínasta helgi að baki. Fór í vísindaferð á föstudaginn í Deloitte sem var bara mjög fínt svo var afmæli hjá Brynju hans Valla. Fínt partý, mikið af fólki og rosa stuð.
Eyddi laugardeginum í leti allan daginn eftir að hafa farið á æfingu 9-11 um morguninn.
Við skötuhjúin fórum aðeins á stúss í gær að skoða í húsgagnabúðir, ekki það að við séum að fara að kaupa eitthvað heldur svona frekar að láta okkur dreyma. Keyptum einn skáp inn á bað.
Fórum svo á Lord of the Rings í gærkvöldi og vá hvað þessi mynd er geðveik, ekkert smá góð. Þetta er mynd sem allir verða að sjá í BÍÓ.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim