miðvikudagur, mars 03, 2004

Ég er ekki eins nettengd núna eins og svo oft áður, netkortið mitt er eitthvað bilað og kemst ég hvorki á netið heima hjá mér né í skólanum á minni vél.
Ég verð samt að segja frá því að ég er í fagi sem heitir upplýsingatækni með áherslu á tölvuendurskoðun og í morgun kom gestafyrirlesari. Ungur strákur sem vinnur við það að brjótast inn í hin ýmsu tölvukerfi til að kanna hversu gott öryggiskerfið er og það var ótrúlegt hann sagðist komast inn í svona 90% kerfa. Hans starf er t.d. að brjótast inn í tölvukerfi hjá fyrirtæki og sjá hvort tæknimennirnir taka eftir því eða ekki, hann gat t.d. farið inn á tölvu forstjórans hjá stóru fyrirtæki hér á landi og séð allt sem hann var að gera og skoðað allt sem var inni á hans vél. Það er eins gott að maður fari aðeins að huga að öryggismálum hjá sér.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim