Þetta var nú bara hin fínasta helgi, fór upp í sumarbústað á föstudaginn með honum Þresti. Vaknaði fyrir allar aldir á laugardag og keyrði á Flúðir þar sem ég var að keppa í badminton og mér gekk bara ágætlega. Við Þröstur keyrðum svo á Gullfoss og Geysi (aðeins að reyna að vera eitthvað menningarleg). Höfðum það svo voða cosy á laugardagskvöldinu, fengum okkur rauðvín og osta og ég bræddi súkkulaði og skar banana niður og svo dýfir maður þeim ofan í súkkulaðið. Rosalega gott, ég mæli með þessu, fékk þetta í seinasta saumó hjá henni Ingu, hún notaði reyndar Fondu sem heldur súkkulaðinu heitu. En þar sem ég var fjarri mannabyggðum og átti enga Fondu þá varð ég bara að bjarga mér.
Í dag, sunnudag, þá notaði ég daginn til að læra í allan dag, ekkert smá dugleg. Héldum svo af stað í bæinn kl. 5 í alveg brjáluðu veðri, Hellisheiðin var lokuð svo við þurftum að fara Þrengslin, en við komumst þó heil heim að lokum :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim