mánudagur, maí 19, 2003

Dvölinni í Danaveldi að ljúka, fórum í mat til Margrétar og fjölskyldu í gærkvöldi og það var mjög fínt. Þau búa í nágrannabæ Kaupmannahafnar sem er alveg æðislegur, fullt af trjám og rólegt hverfi.
Í dag fórum við að skoða CBS (Copenhagen Business School) og fengum nokkra bæklinga. Fórum svo á Strikið og versluðum aðeins, nauðsynlegt að fara í H&M, alltaf hægt að finna svo mikið þar. Enduðum svo daginn á því að fara í Tívolíið en það var reyndar ekki svo góð hugmynd. Því öll fermingarbörnin í Kaupmannahöfn voru á svæðinu og þar af leiðandi þvílíkt langar raðir í öll tækin. Við fórum því bara í 1 tæki og þurftum að bíða óralengi, töfrateppið varð fyrir valinu og var ferðin alveg frábær.
Við kveðjum svo í fyrramálið því þá er ferðinni heitið til Barcelona.
P.S ég fékk fyrstu einkunnina í dag og ég er bara mjög ánægð með hana :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim