Ég er að spá í að þrífa allt í dag, skrúbba og bóna, því ekki veitir af eftir próflesturinn. Svo þarf ég að vera dugleg að þvo fyrir útlandaferðina sem hefst á föstudaginn, jibbý..ég get ekki beðið. Talaði við Söru í gær og hún ætlar að hitta okkur á Hovedbane í hádeginu á föstudaginn. Verðum í Köben frá föstudegi-þriðjudags en á þriðjudaginn liggur leiðin til Barcelona þar sem við hittum Unni Eir og Kidda. Planid er ad vera í Barcelona í rúmlega viku og keyra svo niður til Alicante og heimsækja Tryggva og Óðinn sem eru í skóla þar. Ef þið verðið heppin þá reyni ég að skrifa hérna á meðan á ferðalaginu stendur.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim