mánudagur, maí 12, 2003

Seinasti dagurinn sem ég þarf að læra þessa önnina, fjármálaprófið á morgun kl. 9. Ég get ekki beðið eftir morgundeginum og svo er það bara Köben á föstudaginn. Þar verður próflokunum svo sannarlega fagnað, ég gisti hjá Söru og við erum að vinna í því að skipuleggja helgina :) Davíð og Aðalheiður verða líka í Köben um helgina þannig...það verður alveg svaka fjör.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim