Jæja þá er komið að því að fá linsurnar, á pantaðan tíma kl. 4 í dag og þetta tekur víst klukkutíma. Verður gaman að fara á æfingu í kvöld og sjá loksins kúluna almennilega.
Var annars í skólanum frá 8-1 í dag, fyrst endurskoðun þar sem kennarinn fór yfir 3 kafla því hann var orðinn eitthvað eftirá (fór alltaf yfir 1 í tíma). Svo var það reikningshald 4 þar sem Stefán Svavarsson kennir, hann sýndi okkur rétta lausn af heimaverkefninu sem við skiluðum í dag og well....ég held að enginn í stofunni hafi verið með eins lausn og hann enda ekki beint auðveldasta verkefni sem ég hef gert en það er nú önnur saga.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim