laugardagur, janúar 17, 2004

Vikan búin að vera fljót að líða og gaman að hitta næstum allar vinkonurnar í sömu vikunni þar sem þetta var saumaklúbbsvikan mikla.

Í gærkvöldi voru það viðskiptafræðistelpurnar í saumaklúbbnum Hall og hittumst við heima hjá Heiði, horfðum að sjálfsögðu á Idolið og vorum bara nokkuð sáttar við niðurstöðuna. Allt í einu var allt komið á kaf í snjó og alveg vitlaust veður. Þröstur kom á jeppanum að ná í mig og Sigga og Laufey flutu með.
Á eftir er það svo skírn hjá litla frænda Þrastar og verður spennandi að vita hvað hann á að heita.

Kvöldið ekki alveg planað en það er í vinnslu og líklegt að eitthvað verði gert í góðra vina hópi :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim