Vikan bara að klárast og helgin að ganga í garð það verður ljúft. Mér finnst ég bara búin að vera rosa dugleg þessa vikuna búin að vera ýkt dugleg að læra, klukkan að verða 5 á föstudegi og ég stödd á Þjóðarbókhlöðunni (dæmi um það hvernig næstum öll vikan hefur verið). Ég er farin að sjá fyrir endann á þessu námi mínu og þá er um að gera að gefa aðeins í á lokasprettinum. Mikið af verkefnaskilum framundan þannig það er eiginlega nauðsynlegt að fara að lesa upp fögin og læra þetta almennilega svo ég geti gert verkefnin.
Ég er reyndar að fara að gera eitthvað aðeins meira en að læra um helgina, landsliðsæfing á morgun og svo ætlum við að skella okkur upp í sumarbústað seinnipartinn á morgun í Húsafell. Katrín er búin að leigja bústað og ætlum við að hittast nokkrir gamlir Verzlóvinir og ryfja upp gamlar bústaðaferðir sem farnar voru nokkrum sinnum á Menntaskólaárunum.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim