þriðjudagur, mars 18, 2003

Ég verð nú líka að segja ykkur að ég lærði ljóð um helgina, bróðir minn (10 ára) átti að læra ljóð í skólanum og ég var að hjálpa honum, hlýða honum yfir þetta.
Hér kemur ljóðið :
Íslands minni
Þið þekkið fold með blíðri brá
og bláum tindi fjalla
og svanahljómi, silungsá
og sælu blómi valla
og bröttum fossi, björtum sjá
og breiðum jökulskalla
(vantar seinustu 2 línurnar, lærði þær ekki)
Jónas Hallgrímsson

Ég man þegar ég var að læra þessi ljóð þegar ég var lítil hvað þetta var hrikalega leiðinlegt og tímafrekt eitthvað, en þetta hefur eitthvað hjálpað manni því núna þarf maður að lesa ljóðið aðeins yfir og þá man maður það. Minnið hefur eitthvað batnað með árunum :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim