Jæja, ég held ég geti sagt ykkur að ég sé að fara til útlanda í vor. Planið er að fara til Köben strax eftir prófin, vera þar í 5 daga og fljúga svo til Barcelona. Ætlunin er að vera í Barcelona í svona viku og skoða allt þar sem hægt er að skoða og fara til Andorra. Svo er ætlunin að keyra niður til Alicante þar sem Tryggvi og Óðinn eru og hitta þá eitthvað og djamma með þeim. Fljúga svo heim frá Alicante 3.júní og millilenda í London og svo til Íslands.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim