Matarboðið hjá Guðnýju og Kidda heppnaðist vel í gær, Guðný er alveg snilldarkokkur :) tekið var á móti okkur með fordrykk og flottheitum. Kjöftuðum, spiluðum og skemmtum okkur vel. Kíktum á Hverfisbarinn og dönsuðum aðeins og þar hitti ég fullt af fólki. Svo er það bara næsta matarboð hjá Katrínu, ætlum að hittast þar Verzlóvinkonurnar. Ætli ég fari ekki að kíkja aðeins í námsbækurnar áður en ég fer að taka mig til fyrir næsta djamm :) Double helgi hjá mér, langt síðan það hefur gerst

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim