fimmtudagur, mars 20, 2003

Ég sá alveg snilldar auglýsingu í Fréttablaðinu áðan. Það var semsagt Fjarðarkaup að auglýsa það að ef þú mætir kl. 17:00 í dag og kaupir kippu (8 stk) af Stóru Risa Rís súkkulaði ÞÁ færðu áritað plakkat af Birgittu Haukdal.
Það væri gaman að mæta á svæðið og athuga hvað margir mundu falla fyrir þessari auglýsingu. Þar sem ég hef tekið 2 áfanga í Markaðsfræði þá finnst mér dálítið gaman að pæla í svona hlutum.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim