Er að hugsa um að minnka skriftir hér aðeins næstu vikurnar þar sem próflesturinn er að hefjast fyrir alvöru. Prófin byrja hjá mér næsta föstudag en samt á ég eftir að skila 2 verkefnum. Ég og Ingibjörg erum að verða búnar með skattskilaverkefnið sem við eigum að skila á föstudaginn.
En svo er það Reikningshaldsverkefnið sem á að skila á mánudaginn, ég, Sigga, Ingunn og Birgitta erum að gera það og eigum við alveg slatta eftir af því. Ekki veit ég hvenær við höfum tíma til að klára það.
Dæmatími hjá mér í skattskilum á föstud kl. 18:00 sem verður eitthvað frameftir kvöldi. Verður skrýtið að vera í skólanum á föstudagskvöldi en samt ágætt þar sem kennarinn ætlar að fara yfir rétta lausn á heimaverkefniu.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim