föstudagur, nóvember 14, 2003

Þá er komið að því, ég er að fara að keppa kl. 12 í dag við stelpu frá Eistlandi, Kati Tolmoff. Þessi stelpa keppti líka í fyrra og hún var í pilsi og G-streng undir og það bara sást alltaf upp í boru á greyið stelpunni. spurning hvort hún mæti svona núna til leiks þá verða eflaust allir strákarnir í höllinni að horfa á :)
svo kl. 2 í dag á ég tvíliðaleik með Þorbjörgu á móti 2 búlgörskum stelpum sem eru ansi góðar. Önnur þeirra er í 23. sæti á heimslistanum í einliðaleik, hmmm....hún er bara næstum því í sama sæti og ég :)

Ef þið hafið ekkert að gera í dag þá endilega komið niður í TBR, það verða alveg fullt af skemmtilegum leikjum og vonandi á Söru og Rögnu eftir að gana rosa vel.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim