fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Úff...þetta er búið að vera töff dagur hjá mér. Mætti í vinnuna hálf 9 í morgun og vann til 1. Fór í skólann frá 1-4 í skattskil 2 sem getur oft verið frekar erfiður tími sérstaklega ef maður er eitthvað þreyttur. Frá 4-7 var ég uppi í Odda að undirbúa verkefni fyrir morgundaginn, það er einn hópur sem kynnir sitt verkefni og minn hópur á að gagnrýna það verkefni eða koma með önnur sjónarmið og hvort til sé einhver önnur lausn og hvort við séum sammála þeirra lausn. Frá 19-21:30 þá var ég að vinna og frá því ég kom heim og þar til nú hef ég verið að vinna í verkefninu en var að senda kennaranum okkar lausn þannig....loksins búin.

Ég er að hugsa um að leggjast upp í sófa og horfa á ER síðan í gær (einn af mínum uppáhaldsþáttum) ég missi samt alltaf af þeim því ég er á æfingu á sama tíma en sem betur fer tók pabbi hann upp fyrir mig. Ekki skóli fyrr en 10 í fyrramálið, jibbý ég get sofið aðeins lengur :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim