sunnudagur, nóvember 09, 2003

Fín helgi hjá mér. Leðurpartý á Kjartansgötunni á föstud hjá Kidda og Guðnýju. Þemað var leður eða eitthvað íslenskt og var rosa gaman að sjá hvað sumir voru frumlegir og töff. Það var alveg fullt út úr dyrum, ég komst varla út úr húsinu því það var svo mikið fólk.
Á laugardaginn lá leiðin upp á Akranes þar sem ég var að keppa í badminton, ég lenti í 2.sæti í tvíliða en tapaði í undanúrslitum í tvenndar, helv..ég og Njörður töpuðum 15-13 í oddi. Frekar svekkjandi að tapa svona leik en svona er lífið.
Í dag er ég búin að vera að læra í ALLAN dag, var á hlöðunni frá 11-5 og er líka búin að vera að læra eftir kvöldmat.
Sassa Jóns kom til landsins í dag og skrapp ég í heimsókn til hennar eftir hlöðuna, það var rosa gaman að sjá hana. Hún verður hérna í eina og hálfa viku þannig ég verð að nýta tímann vel með henni :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim