Var að koma úr prófinu í Endurskoðun, gekk bara ágætlega held ég. Ekki tími fyrr en kl. 11 næst og ég er að hugsa um að fara heim og leggja mig. Fór eitthvað svo seint að sofa í gær, var að horfa á þátt um Afganska konu Zarmína hét hún. Hún myrti eiginmann sinn því hann beitti hana þvílíku ofbeldi og fyrir vikið var hún sjálf myrt fyrir framan þúsundir manna eins og þetta væri íþróttaleikvangur. Hún átti 7 börn sem eru núna öll munaðarlaus og enginn vill hafa þau. Þvílíkt ástand sem ríkir þarna.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim