Ég skilaði rannsóknaráætluninni fyrir ritgerðina svona um 11 í gærkvöldi, hvað er málið að vera alltaf á síðustu stundu (ég hafði frest til miðnættis).
Ég ætla ekki alveg að segja ykkur hvað ég ætla að gera strax. En hugmyndin er að gera rannsókn 2 saman á efni sem er tengt vinnusálfræði og stjórnun, en málið er að við þurfum að fá sérstakt leyfi til að gera ritgerðina saman þar sem það er undantekning þannig þetta er ekki alveg staðfest.
En það er semsagt gríðarleg vinna framundan þar sem ég er í 4 fögum og líklega að fara að gera 6.ein ritgerð en það er bara spennandi.
Mér finnst alltaf skemmtilegast þegar ég hef rosa mikið að gera og verð helst að skipuleggja hverja mínútu svo ég nái að gera allt sem ég ætla mér að gera.
Gæti verið að ég þyrfti að minnka badmintonið og líkamsræktina á þessari önn þar sem ég ætla að reyna að hafa skólann og ritgerðina í fyrstu þrem sætunum í forgangsröðinni.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim