sunnudagur, janúar 18, 2004

Litli prinsinn var skírður Óskar Marinó og er hann algjör sjarmör með sítt að aftan og rosa mikið hár.

Fórum til nöfnu minnar í gærkvöldi þar sem var kjaftað, drukkið og borðað fram á nótt og hlustað á U2, ekki leiðinlegt.

Verð að viðurkenna það að leti hefur eiginlega einkennt daginn í dag nema undir kvöld þar sem við Þröstur elduðum steinasteik fyrir mömmu og buðum henni í mat þar sem hún var ein heima. Pabbi og bróðir minn fóru á Lord of the rings.
Maturinn heppnaðist rosa vel og var mamma ekkert smá ánægð með þetta, fyrsta en svo sannarlega ekki síðasta sinn sem hún á eftir að koma í mat til mín :)

Svo er það bara vinna og skóli á morgun

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim