Ég verð eiginlega að fá að monta mig smá því litla frænka mín hún Jóhanna Björg sem er 11 ára er að vinna hvert skákmótið á fætur öðru. Ég hef nokkrum sinnum rekist á nafnið hennar í blöðunum og meira að segja í fyrirsögnum með stórum stöfum og svo vinnur hún hvert skákmótið á fætur öðru. Var í 3.sæti á Alþjóðlegu skákmóti Hróksins og Fjölnis, til hamingju með þetta Jóhanna hún er svo sannarlega fjöskyldunni til sóma og er að koma sér á spjöld sögunnar ef hún heldur svona áfram (ef hún er bara ekki þegar búin að því :) )

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim