Mér líður eiginlega eins og ég sé bara byrjuð í vorprófunum, er búin að vera á hlöðunni öllum stundum síðustu daga. Á að skila stóru verkefni í fyrramálið og vonandi næ ég að klára það á fínum tíma svo ég þurfi ekki að eyða nóttinni í það líka. Ég held maður fatti það að maður geti ekki lært meira þegar maður er farinn að spila kabal í tölvunni, ég stóð mig að því rúmlega 9 í gærkvöldi og ákvað þá bara að pakka saman og fara heim enda var ég orðin alveg vitlaus og heilalaus.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim