Það hefur nú alveg eitthvað gerst síðustu vikuna. Helgin var rosalega fín, ég skellti mér á handboltaleikinn á laugardaginn Ísland-Svíþjóð og það var rosalega gaman. Ég var búin að gleyma því hversu gaman það er að vera á svona skemmtilegum handboltaleik. Stemningin í höllinni var alveg rosaleg og spennan mikil líka alltaf gaman þegar gengur vel.
Á sunnudaginn lág leiðin í brúðkaup til frænku minnar sem var haldið í rosalega fallegri kirkju úti á landi rétt áður en komið er í Galtalæk og eftir það var veislan í sumarbústað rétt hjá. Þetta var frekar stór bústaður með stórum palli þannig fólkið komst nú alveg fyrir. Þetta gekk allt mjög vel fyrir sig og var mjög skemmtilegt nema eitt atvik sem átti sér stað þarna því það kviknaði í pilsinu hjá einni í veislunni. Ég sat úti á pallinum og þá sá ég bara þessa konu koma hlaupandi út og svo var eldur aftan á rassinum á pilsinu. Það náðist sem betur fer að slökkva eldinn í tæka tíð en konan fór upp á slysó til að láta skoða sárið. En annars var veislan alveg frábær og Júlía og Gulli svo sæt :)
Þar sem við vorum komin út á land ákvaðum við Þröstur bara að kíkja í bústaðinn til mömmu og pabba á Laugarvatn og vorum við þar í góðu yfirlæti, borðuðum góðan mat og sátum heillengi í pottinum um kvöldið.

7 Ummæli:
Greyjið konan að láta kveikna svona í rassinum á sér!! Minnir mig bara á "Stellu í Orlofi"....
Ja þetta verður amk eftirminnilegt brúðkaup ;)
Æi greyið konan!!
Hihi, æ greyið konan. Bæði sárt og örugglega frekar vandræðalega reynsla. Gat samt ekki annað en hlegið af þessu (vona að hún hafi ekki meiðst alvarlega).
Bið að heilsa bumbulíus!
Já og ég kannski fæ að hitta hann nýfæddan því ég kem líklega til Íslands í lok ágúst. Björn er nefnilega að verða þrítugur og er að spá í að halda afmælið sitt á Seyðisfirði. Það væri æði að geta hitt ykkur mæðginin í þeirri ferð. Glatað ef ég þyrfti að bíða fram að jólum eftir að sjá Bumbulíus Þrastarson...
Heyrðu en frábært að þið séuð að koma heim. Ef drengurinn verður ekki fæddur þá, þá verðum við bara duglegar að gera eitthvað fara í göngutúra og labba upp stiga til að koma þessari fæðingu þá af stað hehe...
Held samt að hann komi í síðasta lagi 29. ágúst því ég yrði líklega sett af stað þá ef ekkert væri búið að gerast.
Annars var ein vinkonu Söru að eignast litla fyrirburastelpu á sunnudaginn sem var sett á sama tíma og ég þannig allt getur gerst.
Spennó spennó!!!
Hvað er að frétta? Það er nú aldeilis farið að styttast í prinsinn ;) Vona að þú, já og þið bæði, hafið það gott.
Skrifa ummæli
<< Heim