Svakalega langar mig til að opna páskaeggið sem er hérna á borðinu fyrir framan mig. Þetta er svona Rís páskaegg og ég fékk svoleiðis í fyrra og það var alveg rosalega gott. Ég held samt að ég verði að hemja mig og æfa mig í að vera gott fordæmi fyrir því sem koma skal :)
Annars verð ég að tilkynna það að ég fór í strætó í vinnuna í morgun þar sem bíllinn þurfti að fara í skoðun. Mér leið svona eiginlega eins og ég væri komin til útlanda en þetta var bara mjög fínt að sitja í strætó með ipod og fréttablaðið og maður bara hresstist við þetta og kom alveg ferskur í vinnuna. Bara aldrei að vita nema ég fari að gera þetta oftar sérstaklega í góðu veðri.
Annars er vinnuálagið að aukast í vinnunni og vika í fyrsta prófið þannig ég get svosem ekki kvartað yfir því að hafa ekkert að gera. Styttist líka óðum í New York hjá okkur :)

4 Ummæli:
Mmmm ég fékk Rís páskaegg sent með litla bróður. Langar einmitt að opna það strax!! Gangi þér vel að læra fyrir prófið og eigðu góða páska :)
Já mér finnst þú ættir alls ekki að borða þetta páskaegg... mjög slæmt fordæmi! Gefðu mér það bara í staðin :)
Ég er búin að læsa páskaeggið hennar Sóleyjar (sem er btw mölbrotið...) uppí skáp! Það er engin hætta á að hún færi að stelast í það, mig aftur á móti klæjar í puttana, en eins og þú ætla ég að vera góð fyrirmynd ;)
Já þið eruð sko góðar fyrirmyndir, ég myndi örugglega bara fá mér eitt eftir að barnið væri farið að sofa ;)
En annars segi ég bara GLEÐILEGA PÁSKA!!! og takk kærlega fyrir síðast Unnur, það var svaka gaman!
Skrifa ummæli
<< Heim