Jæja fer ekki að koma tími á smá update. Það er allavega allt gott að frétta af mér og öllum heilsast vel.
Það var annars alveg frábært í London síðustu helgi, stelpurnar eru nú búnar að segja eitthvað frá ferðinni. Í grófum dráttum vorum við að versla á Oxford Street og í Covent Garden, fórum út að borða á rosalega fína og góða staði, fórum í klappstýrudans sem var alveg frábær og mjög fyndið, fórum á vaxmyndasafnið, á bari og skemmtistaði og margt margt fleira. Þetta var í raun í 4.skipti sem þessi saumaklúbbur er samankominn í útlöndum og hafa allar ferðirnar verið alveg frábærar og vonandi bara að við höfum þetta árlegt hér eftir :)
Vikan var annars mjög fljót að líða, ég hitti Sæunni og Sóleyju á fimmtudaginn og var alveg frábært að hitta þær mæðgur og takk kærlega fyrir mig, allt dótið sem þið komuð með ég á bara ekki til orð. Það verður gaman að fá þær bara alveg heim.
Um helgina höfum við verið að hjálpa foreldrum Þrastar að flytja og flytja smá sjálf. Fórum með fyrstu kassana í dag en eigum samt eftir að klára að mála eldhúsið og baðið. Við stefnum samt á að reyna að flytja næsta laugardag og ég hlakka svo til þegar allt verður bara komið á sinn stað í nýju íbúðinni og allt verður tilbúið.

2 Ummæli:
Æ hvað Sæunn er almennileg að versla fyrir þig:)
Úff öfunda þig ekki að því að vera að flytja... En það er gaman þegar það er búið. Og gaman að raða í nýju íbúðina!
Líst vel á að gera þetta að árlegum viðburði....
Segi það sama og Regína, ekkert smá gaman að vera búin með flutningana og byrja að raða..... Allt er svo hreint og fínt :)
Skrifa ummæli
<< Heim