sunnudagur, febrúar 26, 2006

Þá er gríðarlega mikilli vinnuhelgi að ljúka, við erum búin að vera að stússast í íbúðinni gjörsamlega alla helgina og maður er orðinn alveg búinn á því. Þetta er samt ekkert smá gaman, fullt af fólki að kíkja í heimsókn og kom amma svo sannarlega eins og kölluð í dag þegar hún mætti með heimagerðar bollur og allt með því og úr varð bara rosalegt bollukaffi í nánast tómri íbúð öll í drasli og með blauta málningu á veggjunum. Allir fjölskyldumeðlimirnir eru búnir að vera að hjálpa okkur alveg fullt, takk allir kærlega fyrir hjálpina og hefðum við aldrei getað verið komin svona langt nema með allri þessari hjálp.

Við skötuhjúin gerðum reyndar eitt annað um helgina en að vinna í íbúðinni og það var að fara í útskrift til Bergrúnar í gærkvöldi. Það var þrusu stuð, maður hitti alveg helling af gömlu versló félögunum og var mikið spjallað og ótrúlega gaman.

Nú er það bara afslöppun í kvöld og veitir svo sannarlega ekki af :) Ég get varla beðið eftir að við flytjum sem verður líklega ekki fyrr en í næstu viku eða þarnæstu helgi og þá get ég farið að bjóða ykkur öllum í heimsókn eða matarboð og bara allir velkomnir sem vilja :)

3 Ummæli:

Blogger Inga sagði...

Rosalega eruð þið dugleg, illu er líka best aflokið svo það er bara betra að keyra sig aðeins út í smá stund og þá er málið bara dautt! Þú verður þó að fara vel með þig og bumbubúann!!

4:32 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

ég er farin að efast um að við verðum flutt in þarna 9.mars en í síðasta lagi laugardaginn 11.mars þannig við flytjum allavega þessa helgi líklega þannig þú bara kemur í heimsókn :)

Já maður verður að fara vel með sig, ég má nú líka ekki koma útkeyrð til London :)

6:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég hlakka til að kíkja á nýju íbúðina og að sjálfsögðu á ykkur í leiðinni ;) Veit nú samt ekki hvenær það verður...það er engin Íslandsferð plönuð í augnablikinu. Farðu vel með þig!

12:19 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim