Það var alveg frábært á Akureyri síðustu helgi þó svo að við komumst ekkert á skíði því það var enginn snjór. Við horfðum á idolið, kjöftuðum, fórum í búðarráp, horfðum á Eurovision,Brynjuís, djömmuðum, fórum í leikhús á Fullkomið brúðkaup sem var alveg rosalega skemmtilegt og mæli ég sko alveg með því.
Þetta var svona algjör stelpuhelgi og svona eiginlega eins og maður hefði skroppið til útlanda, þannig frábær helgi.
Ég bauð svo öllum badmintonstelpunum heim á fimmtudagskvöldinu og var gaman að hitta þær loksins allar aftur. Við erum svo margar hættar að í rauninni er minnihlutinn ennþá að æfa. Við vorum ca 12 og hefðu bara eiginlega ekki fleiri komist fyrir í stofunni hehe...
Við erum orðnir formlegir íbúðaeigendur og fáum líklega afhent bara í lok næstu viku þannig maður ætti kannski að fara að huga að flutningum á næstu dögum.
Jæja nóg af fréttum af mér í bili...það styttist óðum í Londonferðina og get ég varla beðið eftir henni :)

2 Ummæli:
hlakka til að fá ykkur :)
Gangi þér vel í flutningunum....
klukk klukk, kíktu á nákvæmari lýsingar á síðunni minni.....
Skrifa ummæli
<< Heim