fimmtudagur, janúar 19, 2006

Spurning að fara að segja eitthvað hérna. Eiginlega eina sem ég geri þessa dagana er að vinna og það verður svona til 31.janúar býst ég við.

Síðustu helgi skellti ég mér á skíði upp í Bláfjöll með Björk, Bendt og Þresti og var það mjög gaman. Rosalega fínt færi og maður var alveg endurnærður eftir þetta og ég verð nú bara að viðurkenna að ég var ansi þreytt um kvöldið hehe...

Pabbi átti afmæli á sunnudaginn og var smá afmælisboð heima þar sem ansi góðar kökur og brauðréttir voru á boðstólnum.

Planið fyrir helgina fyrir utan það að vinna er að fara í afmæli annað kvöld til Freyju og út að borða á laugardagskvöldinu með viðskiptafræðiskvísunum.

Á langtímaplaninu er það svo Akureyri í febrúar á skíði og til Oddnýjar, London í mars að heimsækja Unni Eir með vinkonunum og New York í byrjun maí með Þresti þannig svosem nóg að hlakka til framundan.

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er aldeilis margt skemmtilegt framundan hjá þér! Mig langar svooo að fara á skíði...það snjóaði aðeins hérna áðan en það er því miður ekki mikið um brekkur hér í DK :( Spurning um að skella sér yfir til Svíþjóðar á skíði.

8:13 e.h.  
Blogger Regína sagði...

Það er alltaf nóg að gera hjá þér duglega stelpa. Það verður stuð hjá okkur í London! London baby yeah!!!

1:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim