Ég var í saumaklúbb í gærkvöldi og þar var ein vinkona mín að tilkynna að hún sé ólétt :) Það verður gaman þegar þetta litla kríli fæðist og er hún sú fyrsta í þessum saumaklúbb til að tilkynna þessar fregnir.
Annars er ég sjálf að bjóða nokkrum skvísum heim í kvöld og er ég að hugsa um að elda fyrir þær. Ég er að reyna að hitta sem flesta eftir einangrunina sem ég er búin að vera í eftir prófin :)
Annars er ég sjálf að bjóða nokkrum skvísum heim í kvöld og er ég að hugsa um að elda fyrir þær. Ég er að reyna að hitta sem flesta eftir einangrunina sem ég er búin að vera í eftir prófin :)

5 Ummæli:
Þú segir ekki svona án þess að segja hver það er!!!!! Ég er forvitin!!!
Sammála síðasta ræðumanni ;) Oddný
Minns veit, Unnsa sagði mér það í gær..Unnur segðu þeim nú hvaða vinkona þín sé ólétt...:)æj ég geri það þá bara..það er dudduruddudu...sassa!
hehe ok, nei, hreint og klárt bull..en já Unnur mín, takk fyrir mig í gær!!:)
Unnur ertu að reyna að láta mig fá hjartaáfall?! Hér sit ég í makindum mínum að "læra" og ákveð að kíkja í tölvuna og svo les ég svona fréttir og hjartað tók alvarlega stóran kipp sem gæti mjög líklega verið hætturlegt. Ástæðan er sú að ég kann að reikna, jújú það var einmitt verslósaumaklúppur um þetta leiti og þá koma bara 3 manneskjur til greina í mínum huga....!
hahaha skil sjokkið hennar Regínu en nei það eru ekki ég, Unnur Eir, Sæunn eða Petrína, getur andað léttar núna!
Skrifa ummæli
<< Heim