Það er heilsuátak í vinnunni hjá mér sem gengur út á það að maður fær 1 stig fyrir að hreyfa sig í 30 mín á dag. Það er aldrei hægt að fá meira en 1 stig á hverjum degi og búið að skipta í lið og við erum 6 í mínu liði og alveg frekar mikill metnaður og eins og er erum við í fyrsta sæti.
Ég hef verið frekar löt við að fara í ræktina undanfarið en til að draga liðið mitt ekki niður þá hef ég farið nokkrum sinnum í göngutúr á kvöldin um hverfið mitt og var ég að koma inn úr einum slíkum.
Það er ótrúlega gaman að ganga um hverfið sem maður ólst upp í og rifja upp svo margt og þar sem ég hef búið í sama hverfinu næstum alla mína ævi þá hefur nú ýmislegt verið gert á hinum ýmsu stöðum. Í kvöld fór ég í gömlu götuna mína (Reykásinn) og labbaði þar í kring í gegnum Rauðásinn, Næfurás og þaðan niður í Heiðarásinn og því miður þá gat ég ekki stytt mér leið í gegnum garðinn því gæinn er búinn að setja girðingu og búinn að taka vörubílinn úr garðinum (þið Árbæingar vitið pottþétt hvaða hús ég er að tala um og hvaða garð).
Þetta var allavega þvílíkt hressandi að skreppa svona út og líka þegar maður situr á rassinum allan daginn að þá held ég að manni veiti ekki af smá hreyfingu svo ég fái nú ekki bara sár á rassinn.

3 Ummæli:
Já shit hvað maður þekkir þetta hverfi vel
Heyrðu góða mín, ferðu frekar í göngutúr en í Tupperware kynningu hjá mér!!! Þín var SÁRT saknað!
Já sorry með tupperwarekynninguna ég bara komst ekki. Fór í skólann beint eftir vinnu og var búin kl. 9 í skólanum og þurfti þá að fara heim að læra og ákvað að skella mér í göngutúr til að hressa mig við svo ég myndi geta farið að læra. Dagarnir eru mjög svo boring þessa dagana hjá mér bara vinna og svo reyni ég að læra í öllum þeim tímum sem ég hef.
Skrifa ummæli
<< Heim